Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 31. janúar 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Bruno Fernandes gæti spilað á morgun
Mynd: Manchester United
Bruno Fernandes gæti spilað sinn fyrsta leik með Manchester United gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Fernandes skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við Manchester United en hann kemur til félagsins frá Sporting Lisabon.

„Hann er klár í að spila og verður pottþétt í hópnum," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, á fréttamannafundi í dag.

„Það hafa verið viðburðaríkir dagar hjá honum undanfarið og dóttir hans átti meira segja þriggja ára afmæli í gær."

„Ég veit ekki hversu mikið hann kemur við sögu en hann verður í hópnum."

Athugasemdir
banner
banner
banner