Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
   sun 29. júlí 2012 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Gústi Gylfa: Erum að skoða 4-5 nöfn
Ágúst Gylfason.
Ágúst Gylfason.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
,,Það var gott að skora tvö mörk hérna en ég var mjög ósáttur við liðið í heildina," sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis eftir 2-2 jafntefli við BÍ/Bolungarvík á Ísafirði í gær.

,,Við sýndum karakter í lokin og náðum að jafna á síðustu sekúndunni sem gefur okkur eitt stig en heilt yfir vorum við ekki nógu góðir í dag. Við vorum værukærir og misstum þá oft innfyrir okkur og það skilaði með rauðu spjaldi á markmanninn okkar og víti og þeir komust í 2-1. En góður karakter engu að síður hjá okkur."

Ágúst var spurður hvort hann ætli að styrkja liðið sitt í félagaskiptaglugganum sem er opinn út næsta þriðjudag.

,,Við erum búnir að missa menn sem voru í láni hjá okkur og setja tvo þrjá menn í önnur lið. Við erum reyndar með stóran hóp, 25 manns á æfingu, en við erum alltaf opnir fyrir góðum leikmönnum en það er erfitt að finna þá. Ef einhver er tilbúinn að koma í Fjölni þá erum við alltaf tilbúnir að skoða möguleikana."

,,Það er stutt í þetta, 1. ágúst á miðvikudaginn og það gæti alveg verið að við myndum taka einn eða tvo leikmenn fyrir það. Það eru nokkur nöfn sem við erum að skoða, 4-5 nöfn og við sjáum til með hvernig það fer."


Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
banner
banner