Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   mið 08. apríl 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík tapaði gegn Grindavík í bikarnum.
Keflavík tapaði gegn Grindavík í bikarnum.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Nýliðum Keflavíkur er spáð falli í spám fyrir mót en þeir byrja tímabilið á útileik gegn KR á sunnudaginn. Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur spjallaði við Fótbolta.net á kynningarfundi Bestu deildarinnar.

„Þetta er spennandi. Það er gaman að vera komnir aftur upp. Okkur er á flestum stöðum spáð í ellefta eða tólfta sæti. Það er kannski eðilegt sem nýliði, það er bara okkar að afsanna það. Markmið okkar er að halda okkur uppi í deildinni," segir Haraldur.

„Við erum bara klárir. Búnir að æfa vel í vetur og það hefur gengið bara fínt í vetur. Mannskapurinn er klár."

Vinnum ekki bikarinn í ár
Keflavík tapaði gegn grönnum sínum í Grindavík í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins um páskahelgina en úrslitin réðust í vítakeppni. Var það mikið högg?

„Já það var það. Alltaf leiðinlegt að detta svona snemma úr bikarnum. Við ætluðum okkur að fara langt í þeirri keppni. Það er bara eins og það er. Við vinnum ekki bikarinn í ár allavega."

Fullfrískur
Einn besti maður vallarins í þeim bikarleik var markvörðurinn ungi Ásgeir Orri Magnússon hjá Keflavík en hann er að koma til baka úr meiðslum sem héldu honum frá keppni síðasta sumar.

„Hann hefur verið hægur í gang eftir meiðslin og það tók tíma að koma honum inn á völlinn aftur. Það komu upp önnur meiðsli sem settu strik í reikninginn en nú er hann fullfrískur og klár í þetta."

Hvernig ætla Keflvíkingar að mæta KR-ingum?

„Það er bara verðugt verkefni, að fara í Frostaskjólið og ná í sigur. Við ætlum okkur svo sannarlega að gera það. Við þurfum að vera plan á móti þeirra leikstíl," segir Haraldur. Hvernig ætlar Keflavík að stöðva KR?

„Eigum við ekki að halda spilunum þétt að okkur, það er fyrir ykkur að sjá."

föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner
banner