„Ég hef aldrei upplifað þessa tilfinningu áður," sagði kampakátur Jóhann Laxdal eftir 3-0 sigur Stjörnunnar gegn Þrótti í undanúrslitum bikarsins.
Stjarnan er komin í úrslitaleik bikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Stjarnan er komin í úrslitaleik bikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 0 Þróttur R.
„Þróttarar gáfu okkar hörkuleik en við kláruðum þetta með flottum mörkum."
Stuðningssveitir beggja liða voru þrusuflottar í kvöld.
„Þetta er alvöru. Svona á þetta að vera í hverjum einasta leik. Það er bara leiðinlegt að það séu fáar svona flottar stuðningssveitir eins og Köttararnir og Silfurskeiðin."
„Nú þarf KSÍ bara að taka sig saman í andlitinu og ákveða almennilega tímasetningu. Ég vil þetta klukkan sex eða átta með flóðljós og læti."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en einnig má sjá klippu af fögnuði Stjörnumanna eftir leikinn.





















