„þetta tók vissulega í aðeins,“ sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA eftir baráttusigur á Fjölni á Akureyrarvelli í kvöld.
„Við erum að spila á móti mjög góðu liði hér í kvöld. Þeir voru ekki vaknaðir í byrjun leiks og við göngum á lagið og gerum mark en erum svo í miklum vandræðum næsta hálftímann. Eiginlega þangað til að við skorum annað markið okkar, þá fórum við að spila varnarleikinn betur.“
„Þetta er í fyrsta sinn í sumar sem við vinnum tvo leiki í röð og fyrsta skiptið sem við vinnum Fjölni undir minni stjórn, við erum að gera ýmislegt með þessum sigri.“
„Við erum að stimpla okkur inn í þennan fimm liða pakka sem er mjög þéttur og nú reynir á að taka næsta leik af sömu festu og bæta ofaná þetta.“
Nánar er rætt við Gunnlaug í sjónvarpinu hér fyrir ofan.























