Ólína Kristín Sigurgeirsdóttir og Kristrún Rose Rúnarsdóttir fyrirliðar Þróttar hampa sigurlaununum í gærkvöldi.
Þróttur 1 - 0 HK/Víkingur
1-0 Valgerður Jóhannsdóttir ('8)
Þróttur vann úrslitaleik 1. deildar kvenna gegn HK/Víkingi í gærkvöldi en leikið var á Fjölnisvelli í Grafarvoginum.
1-0 Valgerður Jóhannsdóttir ('8)
Þróttur vann úrslitaleik 1. deildar kvenna gegn HK/Víkingi í gærkvöldi en leikið var á Fjölnisvelli í Grafarvoginum.
Bæði lið höfðu tryggt sér sæti í Pepsi-deildinni að ári með því að leggja andstæðinga sína í undanúrslitaleikjum sem voru spilaðir heima og að heiman. Þróttur vann þá Fram og HK/Víkingur lið Fjölnis.
Þá átti bara eftir að ráða að úrslitum mótsins og krýna 1. deildar meistara kvenna 2012 og það var gert í leiknum í gær.
Valgerður Jóhannsdóttir kom Þrótturum yfir á áttundu mínútu leiksins með marki beint úr aukaspyrnu hægra megin við vítateigshornið. Spyrnan var einkar glæsileg hjá Valgerði og boltinn söng í samskeytunum fjær.
HK/Víkingur sótti í sig veðrið eftir þetta og var meira með boltann eftir þetta en bæði lið áttu sín færi. Þróttarliðið barðist fyrir úrslitunum og vann leikinn með þessu eina marki.
Hér að ofan má sjá myndband af Þróttarstúlkum fagna í leikslok.






















