Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
   lau 04. apríl 2026 20:17
Hilmar Jökull Stefánsson
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Todor Hristov, þjálfari Hattar, var til viðtals hjá Fótbolti.net eftir 0-5 tap sinna manna gegn KA í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í dag.
Höttur vann Neista frá Djúpavogi með sömu markatölu, 5-0 í síðustu umferð í bikarnum og því lá beinast við að spyrja Todor hvernig munurinn væri á tilfinningunni.

„Bara svart og hvítt en ég get ekki verið meira stoltur af strákunum í dag, þetta er mjög ungt lið. Við vorum í fyrri hálfleik góðir varnarlega svo á 25. mínútu gerum við mistök í vörninni og þeir skora. Þetta breytir leiknum á móti svona liði sem er mikið á boltann og mikið að færa okkur. Það var erfitt að komast inn í leikinn eftir það fannst mér en ég er mjög stoltur af liðinu mínu.“


Lestu um leikinn: Höttur 0 -  5 KA

Höttur lokaði vel á miðju KA manna framan af leiknum, var það uppleggið, að loka á miðjuna og vera þéttir fyrir?

„Já. Við vildum loka miðjunni mjög vel plús ég bjóst við að það yrði mikið að gera hjá okkur varnarlega séð á köntunum. Þeir eru mjög góðir að ýta bakvörðunum upp og við vorum tilbúnir í það fannst mér. Og það kom mér ekki á óvart að við gerðum vel varnarlega á móti liði sem er í Bestu-deildinni og aðeins dýrara en okkar.“

Þegar Höttur náði aðeins að halda í boltann þá voru þeir jafnfljótir að missa hann þegar þeir fóru aðeins með hann upp á völlinn. Hvað fannst Todor vanta upp á svo liðið hefði mátt gera betur ofarlega á vellinum.

„Mér fannst munurinn líka "physically" séð. Þeir keppa fyrsta leik í Bestu-deildinni eftir viku en hjá okkur er það eftir mánuð þannig það var smá munur þar líka. Þegar við erum búnir að verjast lengi og mikið þá er erfitt að sækja svo en kannski við náum ekki að tengja nógu mikið sem er skiljanlegt en þeir eru gríðarlega sterkir í hvíldarvörn, tilbúnir að pressa aftur og vinna boltann. Þetta er tvennt finnst mér. "Physically" og þeir voru vel skipulagðir þegar þeir töpuðu boltanum.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner