Í sérflokki á landinu
„Staðan er mjög góð, höfum verið að æfa vel og hópurinn er nokkurn veginn klár. Það er gott að vera kominn aftur í Garðabæinn, það eru sex ár frá því að ég var hérna síðan og ég sé að klúbburinn hefur þróast í rétta átt. Yngri flokka starfið er gríðarlega öflugt og mikið hrós á félagið. Það hefur greinilega mikil vinna verið unnin undanfarin ár hjá félaginu. og það komið á ennþá hærri stað."
„Það eru andlit ennþá hjá frá félaginu frá því að ég var þarna síðasta sem er mjög jákvætt, það segir mér að fólki líður vel í Garðabænum. Miðgarður var ekki þegar ég var síðast hjá Stjörnunni, þvílíkt mannvirki og geggjað að æfa þar á veturna. Klúbburinn hefur þróast í rétt átt og á sama tíma er rétta fólkið ennþá hjá félaginu," segir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, sem sneri aftur í Garðabæinn fyrr í vetur eftir að hafa verið hjá Fram síðustu ár. Þar á undan var hann hjá Tindastóli. Óskar ræddi við Fótbolta.net í síðustu viku.
„Það eru andlit ennþá hjá frá félaginu frá því að ég var þarna síðasta sem er mjög jákvætt, það segir mér að fólki líður vel í Garðabænum. Miðgarður var ekki þegar ég var síðast hjá Stjörnunni, þvílíkt mannvirki og geggjað að æfa þar á veturna. Klúbburinn hefur þróast í rétt átt og á sama tíma er rétta fólkið ennþá hjá félaginu," segir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, sem sneri aftur í Garðabæinn fyrr í vetur eftir að hafa verið hjá Fram síðustu ár. Þar á undan var hann hjá Tindastóli. Óskar ræddi við Fótbolta.net í síðustu viku.
Tekur við fullmótuðum hóp og hrósar forvera sínum
Óskar hrósar forvera sínum, Jóhannesi Karli Sigursteinssyni, fyrir gott starf.
„Hópurinn er fullmótaður nema það komi eitthvað mjög óvænt upp, mikið hrós á Kalla, hann skildi við liðið á frábærum stað. Við þjálfarar erum oft dæmdir út frá því hvað við gerum á meðan við vinnum fyrir félögin, en við verðum líka horfa í það hvernig við skiljum við liðið okkar og hann skildi við liðið á frábærum stað."
„Við sóttum Murr (Murielle Tiernan), það voru bæði tölfræðiþættir og týpan af senter sem hún er sem skiptir máli. Á sama tíma er ég með þrjá mjög unga og öfluga sentera. Klara Kristín er úti í Bandaríkjunum og svo er ég með Snæju og Hrefnu sem hafa verið ofboðslega góðar. Murielle kemur inn í þá samkeppni og á sama tíma að hjálpa þeim að þroskast og stækka."
„Svo tökum við Telmu (Steindórsdóttur), ég þekki hana og Murielle báðar mjög vel og veit að hverju ég geng með þær tvær. Þær styrkja hópinn klárlega."
„Við erum ekki að skoða okkur um á markaðnum, erum mjög ánægð með hópinn okkar og hvernig staðan er. Breiddin er mikil og breiddin er góð, samkeppni um stöður. Það þarf að koma eitthvað ótrúlega áhugavert og spennandi upp svo við skoðum það. Annars er fókusinn ekki á markaðnum eins og staðan er í dag."
3. flokkurinn í sérflokki á landinu
Á dögunum var valinn æfingahópur U17 landsliðsins og þar var Stjarnan með átta fulltrúa.
„Það kemur til af því að yngri flokka starfið hefur verið frábært, Jóhannes Gauti og Hilmar Árni hafa verið með þriðja flokkinn og margir þjálfarar komið að starfinu. Palli Árna (yfirþjálfari) á mikið hrós skilið fyrir hvernig hann hefur haldið utan um yngri flokka starfið. 2009 og 2010 árgangarnir okkar eru klárlega framtíð félagsins, við þurfum að búa til pláss fyrir þær til að fá smjörþefinn af meistaraflokknum. Þær hafa fengið tækifæri á æfingum og í leikjum í vetur og staðið sig feikilega vel. Það er klárlega efniviður til staðar og við erum með heilu árgangana (af öflugum stelpum), ég get nánast fullyrt það að 3. flokkurinn okkar er í sérklassa á Íslandi í dag. Við þurfum að búa til pláss fyrir þessa leikmenn. Það eru líka leikmenn í U19 og U15 landsliðunum, við viljum að þessar stelpur komist alla leið. Við þurfum að nýta efniviðinn rétt."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Uppbygging en ætlar sér alla leið með liðið
Besta deild kvenna hefst 24. apríl. Hvað vill Óskar gera með Stjörnuna?
„Það þarf alltaf að vera skammtíma- og langtímasýn. Við erum að fara í uppbyggingu, það eru margir hræddir við orðið uppbyggingu og margir sem setja stimpilinn á það að ef þú ert orðinn 25 ára þá ertu orðinn of gamall. Það er ekki þannig hjá okkur, en við viljum til að byrja með helst horfa á yngri flokkana okkar og sjá hvort við getum komið leikmönnum þaðan inn í meistaraflokkinn frekar en að vera sækja mikið af leikmönnum. Við viljum skapa heilbrigt, jákvætt og gott umhverfi fyrir leikmenn til að mótast í og taka framförum í."
„Við réðum Orian Burzic sem aðstoðarþjálfara, hann er menntaður einstaklingsþjálfari og einbeitir sér að því að einstaklingarnir þróist. Við viljum að einstaklingurinn þroskist og þróist, en á sama tíma viljum við að liðið verði betra. Við viljum koma Stjörnunni aftur í fremstu raðir. Liðið var gott síðasta sumar, endar í 4. sæti og gerði gríðarlega vel."
„Ég held að ég hafi talað við þig fyrir 4-5 árum síðan þegar ég tók við hjá Fram, ég sagði við þig að ég ætti stór markmið og stóra drauma. Það er það sama hjá Stjörnunni, ég vil fara alla leið með þetta verkefni og er mjög þakklátur tækifærinu á að þjálfa liðið," segir Óskar Smári.
Athugasemdir























