Sigurbjörn Hreiðarsson, annar af aðalþjálfurum Vals, var í viðtali eftir leik liðsins við HK í Lengjubikarnum í kvöld. Valur vann leikinn með marki frá Orra Sigurði Ómarssyni.
Bjössi, eins og hann er oftast kallaður, var spurður út í leikinn, framhaldið og stöðu Bjarna Ólafs Eiríkssonar.
„Ég er nokkuð sáttur með leikinn, héldum hreinu og spiluðum ágætis fótbolta. Hefðum getað skorað fleiri," sagði Bjössi.
„Menn eru að koma til baka og hópurinn er að stækka og styrkjast. Bjarni Ólafur var með í dag og er búinn að vera með okkur."
„Stefnan er að gera eins vel og við getum með þennan mannskap og það eru allir á þeirri línu hjá okkur. Við sjáum hverju það skilar okkur í haust. Við getum klárlega orðið fyrsta liðið til að komast í riðlakeppnina, hvenær svo sem það gerist"
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.

Athugasemdir