Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Brighton vill svimandi upphæð fyrir Baleba
Mynd: EPA
Sky Sports segir að Manchester United hafi haft áhuga á Carlos Baleba, miðjumanni Brighton, í janúar en Brighton vill fá mjög háa upphæð fyrir Kamerúnann og því voru engar líkur á félagaskiptum í vetrarglugganum.

Baleba er 22 ára miðjumaður sem fyrst var orðaður við United síðasta sumar.

Samkvæmt fréttamanni Sky Sports metur Brighton Baleba á svipaða upphæð og Moises Caicedo sem seldur var til Chelsea 2024 á 115 milljónir punda.

„Brighton seldi síðasta miðjumann, Moises Caicedo, á 115 milljónir punda og félagð er á því að Baleba búi yfir sömu gæðum," segir Mark McAdam á Sky Sports.

Stórlið í úrvalsdeildinni fylgjast með Baleba og Man Utd er eitt þeirra.
Slapp
Athugasemdir
banner