Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 15:00
Kári Snorrason
Viðtal
„Skrifað í skýin að hann myndi einn daginn koma“
Lengjudeildin
Birkir Már Sævarsson.
Birkir Már Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir.
Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir.
Mynd: Afturelding
Georg Bjarnason viðbeinsbrotnaði í æfingaferð Aftureldingar í síðustu viku.
Georg Bjarnason viðbeinsbrotnaði í æfingaferð Aftureldingar í síðustu viku.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding mætir ÍR í Mjólkurbikarnum á sunnudaginn.
Afturelding mætir ÍR í Mjólkurbikarnum á sunnudaginn.
Mynd: Raggi Óla
Sævar Atli Hugason.
Sævar Atli Hugason.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Birkir Már Sævarsson var óvænt tilkynntur sem nýr leikmaður Aftureldingar síðastliðinn sunnudag. Birkir verður 42 ára síðar á árinu en er hvergi nærri hættur. Hjá Aftureldingu mun Birkir leika ásamt litla bróður sínum, Aroni Elí.

Fótbolti.net sló á þráðinn til Magnúsar Más Einarssonar, þjálfara Aftureldingar, og ræddi við hann um komu Birkis.

Mánuður er í að Lengjudeildin hefjist og var jafnframt rætt við Magnús um komandi átök þar, en liðið féll úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð.

Hugmynd sem við höfum áður fengið
Hvernig kom það til að þið sóttuð Birki?
„Málið er það að Georg (Bjarnason), hægri bakvörður hjá okkur, viðbeinsbrotnaði hjá okkur úti í æfingaferðinni. Það verða einhverjar vikur sem hann verður frá. Það á eftir að koma í ljós hvort að hann eigi eftir að fara í aðgerð eða ekki og hvernig batinn verður. Hann hefur auðvitað verið frábær fyrir okkur og við vonum að hann snúi sem fyrst aftur út á völlinn.

Í kjölfarið á þessu fórum við að líta í kringum okkur eftir bakverði og nafn Birkis datt mjög fljótlega inn í umræðuna hjá okkur. Við ákváðum að heyra í honum. Þetta er hugmynd sem við höfum fengið áður, Georg hefur t.d. verið í skóla erlendis. Við höfum áður reynt að fá Birki en það hefur ekki gengið hingað til. Ég sagði við hann núna að þetta væri síðasta skiptið sem við myndum reyna við hann. Þetta var síðasti sénsinn fyrir hann ef hann vildi koma til okkar og spila með bróður sínum.

Hann samþykkti það sem er auðvitað mjög jákvætt. Ég held að ef hann ætlaði að spila fyrir eitthvað annað lið en Val í efstu tveimur deildunum á Íslandi hafi Afturelding verið líklegasti valkosturinn hjá honum undanfarin ár út af tengingunni við bróður hans. Ég held að hann hafi mætt nánast á hvern einasta leik hjá okkur undanfarin ár og hrifist af því sem við erum að gera. Það var eiginlega skrifað í skýin að hann myndi koma einn daginn. Þó að einhverjir hafi haldið að tíminn væri farinn frá okkur.“


Viss um að hann verði í góðu standi
Hvernig er standið á Birki?
„Hann er búinn að æfa með KH og spilaði 90 mínútur á móti vinum okkar í Hvíta Riddaranum í síðustu viku. Hann mætti á fyrstu æfingu í fyrradag og leit vel út. Ég veit að hann verði í fínu standi þegar deildin byrjar.

Við höfum nokkrar vikur fram að því. Það er spennandi bikarleikur gegn ÍR framundan á sunnudaginn, ég hlakka til að sjá hvað hann spilar mikið í þeim leik og að sjá hann inni á vellinum. Ég er ekki í nokkrum vafa um að hann verði í toppstandi þegar deildin byrjar.“


Staðan góð og opinn fyrir styrkingu
Mánuður í Lengjudeildina, hvernig er staðan á hópnum?
„Staðan er góð. Það er búinn að vera góður gangur á okkur. Tókum góða æfingaferð á Spáni í síðustu viku. Liðsheildin er gríðarlega öflug hjá okkur og menn eru að taka stór skref fram á við, bæði sem einstaklingar og lið. Við áttum flottan leik gegn Breiðabliki. Lengjubikarinn var upp og ofan, áttum góða og slæma leiki. En ég er mjög ánægður með hvernig síðustu vikur hafa verið. Ég veit að það býr ennþá meira í hópnum þannig að ég hlakka til að sjá vikurnar sem eru framundan.“

Býstu við frekari styrkingum fyrir mót?
„Við erum alveg opnir fyrir því að bæta inn einum manni fyrir mót. Það þarf að vera réttur leikmaður sem passar inn í okkar hugmyndafræði og réttur karakter. Við þurfum að sjá hvort að við finnum hann eða ekki. Við erum opnir fyrir því en ekkert ákveðið. Ég er mjög ánægður með núverandi hóp þannig að það þarf að vera öflugur leikmaður ef við ætlum að bæta við manni. Það kemur bara í ljós, það er enn mánuður í að glugginn lokar.“

Georg er auðvitað frá, eru fleiri á meiðslalistanum?
„Sævar (Atli Hugason) meiddist í leik gegn Gróttu, það á eftir að koma nákvæmlega betur í ljós hversu lengi hann verður frá. En að öðru leyti er góður gangur á þessu. Ég hlakka mikið til að sjá liðið í næstu leikjum. Bikarinn er að byrja á sunnudaginn. Ég er að líta svo á að tímabilið byrji þá og deildin byrjar eftir fjórar vikur. Þetta eru spennandi vikur framundan.“

Hörkuleikur gegn ÍR á sunnudag
Afturelding mætir ÍR í 64-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á sunnudaginn. Sigurvegari einvígisins mætir annað hvort Ými eða sigurvegaranum úr viðureign KFS og Þorláks.

„Það verður hörkuleikur. ÍR-ingar voru öflugir í Lengjudeildinni í fyrra og hafa náð frábærum úrslitum í vetur. Það er mikill kraftur í þeim. Við þurfum að vera upp á okkar allra besta til að eiga möguleika til að fara áfram í næstu umferð. Það er eitthvað sem við stefnum á að gera.“
Slapp
Athugasemdir
banner