Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   lau 23. maí 2026 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Curtis Jones vill fara til Inter
Mynd: EPA
Ítalski miðillinn Gazzetta Dello Sport segir frá því að Curtis Jones, miðjumaður Liverpool, vilji fara til Inter en Aston Villa og Newcastle hafa einnig áhuga.

Inter reyndi að fá Jones í janúar en viðræðurnar strönduðu þar sem Liverpool vildi fá Denzel Dumfries í skiptum fyrir enska miðjumanninn.

Það er ólíklegt að Jones skrifi undir nýjan samning en samningur hans við Liverpool rennur út næsta sumar. Inter vonast því til að fá Englendinginn á sanngjörnu verði í sumarglugganum.

Manu Kone, leikmaður Roma, er aðalskotmark Inter á miðsvæðið í sumar.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner