Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Raffaele Palladino haldi ekki áfram með Atalanta eftir tímabilið.
Fyrrum Evrópudeildarmeistararnir eru enn í leit að verðugum arftaka eftir farsæla tíð undir stjórn Gian Piero Gasperini og telur stjórn félagsins sig hafa fundið réttan mann.
Sá maður heitir Maurizio Sarri og starfar við stjórnvölinn hjá Lazio sem stendur, en hann býr yfir gífurlegri reynslu eftir að hafa verið aðalþjálfari hjá Napoli, Chelsea og Juventus.
Atalanta endar fyrir ofan Lazio á deildartímabilinu, í sjöunda sæti með 59 stig úr 38 umferðum. Sarri mun því stýra liðinu í Sambandsdeildinni á næstu leiktíð.
Ivan Juric tók við af Gasperini síðasta sumar en var rekinn fimm mánuðum síðar og Palladino ráðinn í staðinn. Palladino er með samning til 2027 en stjórnendur vilja frekar ganga frá ráðningu á Sarri.
17.05.2026 08:30
Grátbiðja Sarri um að mæta



