Bayern 3 - 0 Stuttgart
1-0 Harry Kane ('55 )
2-0 Harry Kane ('80 )
3-0 Harry Kane ('92, víti)
1-0 Harry Kane ('55 )
2-0 Harry Kane ('80 )
3-0 Harry Kane ('92, víti)
Þýskalandsmeistarar FC Bayern spiluðu við Stuttgart í úrslitaleik þýska bikarsins í kvöld. Liðin mættust á Ólympíuleikvanginum í Berlín.
Bayern hélt boltanum vel í fyrri hálfleik en skapaði litla hættu á meðan Stuttgart olli talsvert meiri usla en tókst ekki að skora.
Vincent Kompany hefur haldið góða ræðu því það var allt önnur sjón að sjá Bæjara í síðari hálfleiknum. Harry Kane náði forystunni með skalla af stuttu færi eftir stórkostlega fyrirgjöf frá Michael Olise og fékk liðið tækifæri til að tvöfalda forystuna áður en Kane skoraði aftur.
Á 80. mínútu átti Kane magnað skot í slá og náðu liðsfélagar hans frákastinu. Úr varð skemmtilegt samspil sem endaði á marki frá Kane, sem setti hann inn eftir að hafa tekið laglegan snúning með boltann við vítateigslínuna.
Stuttgart reyndi að minnka muninn en skapaði aldrei hættu. Kane fullkomnaði þess í stað þrennuna af vítapunktinum eftir að hendi var réttilega dæmd eftir fyrirgjöf frá Olise.
Lokatölur í úrslitaleiknum urðu 3-0 og skoraði Kane öll mörkin. Bayern er þar með tvöfaldur meistari í Þýskalandi í fyrsta sinn síðan 2020 enda er þetta í fyrsta sinn sem liðið fer í úrslitaleikinn síðan.
Kane skoraði 61 mark og gaf 7 stoðsendingar í 51 leik á mögnuðu tímabili með FC Bayern.


