Aron Snær Ingason, sóknarmaður Þróttar, var fluttur burt í sjúkrabíl eftir að hafa lent í hörðum árekstri við Axel Óskar Andrésson, varnarmann Aftureldingar, í Lengjudeildinni í gær.
Þeir voru í baráttunni um boltann og hlutu báðir þungt höfuðhögg. Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, vildi fá rautt spjald á Axel.
Þeir voru í baráttunni um boltann og hlutu báðir þungt höfuðhögg. Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, vildi fá rautt spjald á Axel.
Lestu um leikinn: Afturelding 4 - 3 Þróttur R.
„Ég horfði á þetta á Livey og persónulega finnst mér þetta ekki rautt en þetta er hræðilegur árekstur. Mér sýnist þetta ekki vera rautt, er Axel ekki bara að fara í boltann?" segir Valur Gunnarsson í útvarpsþættinum Fótbolt.net.
Andri Júlíusson er sammála því að þetta hafi ekki átt að vera rautt.
„Ég er sammála þér. Axel á að ráðast í þennan bolta, ef hann hefði farið með fæturna í hann hefði þetta verið rautt. Hann fer með hausinn og meiðist sjálfur. Það er enginn ásetningur í þessu, bara slys. Vonandi er í lagi með Aron," segir Andri.
Samstuðið átti sér stað á tólftu mínútu og tveir sjúkrabílar keyrðu inn á völlinn. Aron fór með sjúkrabíl en Axel gekk af velli. Sæbjörn Steinke fréttamaður Fótbolta.net heyrði í þeim báðum í dag. Afturelding er komið á góða sigurbraut og vann leikinn 4-3.



