Það var spennandi Íslendingaslagur í sænsku deildinni í dag þar sem Kristianstad fékk Hammarby í heimsókn.
Alexandra Jóhannsdóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir voru í byrjunarliði Kristianstad og Linda Líf Boama byrjaði á bekknum. Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Hammarby.
Alexandra Jóhannsdóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir voru í byrjunarliði Kristianstad og Linda Líf Boama byrjaði á bekknum. Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Hammarby.
Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en Kristianstad var með yfirburði í seinni hálfleik. Hammarby nýtti sér hins vegar eina færið og skoraði eina mark leiksins. 1-0 sigur Hammarby staðreynd. Linda kom inn á fyrir Alexöndru í hálfleik og Elísa var tekin af velli undir lok leiksins. Guðrún spilaði allan leikinn.
Hammarby er á toppnum með fullt hús stiga eftir sex umferðir en Kristianstad er í 5. sæti með ellefu stig eftir sjö umferðir.
Heiða Ragney Viðarsdóttir kom inn á sem varamaður þegar Eskilstuna tapaði 3-0 gegn Rosengard. Eskilstuna er í 3. sæti með 12 stig.
Emelía Óskarsdóttir og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir komu inn á þegar FC Kaupmannahöfn gerði 1-1 jafntefli gegn Osterbro í dönsku deildinni. FCK er í 2. sæti meeð 14 stig, fimm stigum á eftir Midtjylland þegar tvær umferðir eru eftir.


