Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
   lau 23. maí 2026 18:08
Sigurjón Árni Torfason
Nenad: Mjög kærkomið
Lengjudeildin
Nenad Zivanovic
Nenad Zivanovic
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis var nokkuð ánægður eftir 0-0 jafntefli JBÓ vellinum í Njarðvík í dag. Þetta eru fyrsta stig Ægis í Lengjudeildinni þetta árið.

Það var nokkuð mikill vindur í Njarðvík í dag sem hafði mikil áhrif á leikinn.

„Aðstæður voru ekki þær bestu fyrir einhvern fallegan fótboltaleik, þannig að þetta var meira svona barátta og liðin að reyna að vinna bolta og búa svo eitthvað til úr því."

Þjálfarinn er mjög sáttur með fyrstu stig sumarsins. 

„Við vorum með núll stig fyrir þennan leik, fjögur töp í fjórum leikjum, þannig að þetta jafntefli, fyrsta stigið og náttúrulega á útivelli, það er mjög kærkomið. Ég meina á útivelli á móti sterku liði eins og Njarðvík, það er mjög gott, við erum ánægðir."

Ægir fengu tækifæri til að taka öll 3 stigin með sér heim til Þorlákshafnar, tvö sláarskot og töluver af góðum færum.

„Þetta er fótbolti, við áttum tvö stangarskot, ótrúleg varsla frá Guy Smith sem er einn besti markmaðurinn í deildinni svo annað eftir hornspyrnu. Jordan átti mjög gott skot í seinni hálfleik, en Njarðvík áttu líka tvö eða þrjú færi í viðbót þarna þannig að ég get ekki kvartað."

Byrjunin hefur ekki verið góð fyrir Ægi og þeir höfðu fram að þessum leik tapað öllum sínum leikjum.

„Nei, ég er ekki ánægður með byrjunina en ég vona að restin af tímabilinu verði betri." sagði Nenad að lokum við Fótbolti.net.


Slapp
banner
banner