Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, verður frá fram í júlí vegna meiðsla á hné.
Valgeir meiddist á æfingu fyrir bikarleikinn gegn Þrótti í síðustu viku, tognaði á liðbandi (MCL) í hné, og verður frá í um tvo mánuði.
Hann hafði einnig misst af leiknum gegn FH í deildinni en það var ekki vegna sömu meiðsla.

Valgeir hefur leikið sem hægri bakvörður hjá Breiðabliki og átti fínt tímabil í fyrra. Hann er fæddur árið 2002, uppalinn í HK og kom í Breiðablik frá Örebro eftir tímabilið 2024.
Ólafur Ingi Skúlason ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn gegn KR í gær og sagði þjálfari Breiðabliks að styst væri í Kristin Steindórsson sem einnig var á meiðslalistanum í gær.