Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
   lau 23. maí 2026 10:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bruno Fernandes leikmaður ársins í úrvalsdeildinni
Mynd: EPA
Bruno Fernandes, fyrirliði Man Utd, hefur verið valinn leikmaður ársins í úrvalsdeildinni eftir sögulegt tímabil.

Fernandes hefur verið frábær á þessu tímabili en hann hefur skorað átta mörk og lagt upp tuttugu í 37 leikjum og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í Meistaradeildinni.

Hann jafnaði met yfir Thierry Henry og Kevin De Bruyne yfir flestar stoðsendingar á einu tímabili.

Hann vinnur þessi verðlaun í fyrsta sinn á ferlinum og þá er hann fyrsti leikmaður Man Utd til að vinna síðan Nemanja Matic hreppti verðlaunin tímabilið 2010/11.

Hann vann ensku meistarana David Raya, Gabriel og Declan Rice í baráttunni um verðlaunin. Erling Haaland, sem er á góðri leið með að vinna gullskóinn þriðja árið í röð, Antoine Semenyo, Morgan Gibbs-White og Igor Thiago komu einnig til greina.


Slapp
banner