Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
   lau 23. maí 2026 16:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir er komið á toppinn í Lengjudeildinni eftir 1-0 sigur á Völsungi á Húsavík í dag. Fótbolti.net ræddi við Heimi Guðjónsson, þjálfara Fylkis, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Völsungur 0 -  1 Fylkir

„Ekki okkar besti leikur en andstæðingurinn var öflugur, gríðarlega baráttuglaðir og vel skipulagðir. Mér fannst við sterkari aðilinn i leiknum en náðum ekki að opna þá nógu mikið en þrjú stig. Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði þannig þetta var allt jákvætt," sagði Heimir.

„Við náðum ekki að opna þá nógu mikið en engu að síður var hugarfarið til fyrirmyndar. Við vildum þetta þannig við erum ánægðir með sigurinn."

Guðmundur Tyrfingsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu sem heimamenn voru ekki sáttir með.

„Ég hef ekki séð þetta aftur. Ég held að þetta hafi verið víti en ég ætla ekki að fullyrða það. Ég stóð langt frá þessu og á eftir að sjá þetta aftur," sagði Heimir.
Slapp
banner
banner