Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
   lau 23. maí 2026 17:23
Sigurjón Árni Torfason
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Lengjudeildin
Davíð Smári er bjartsýnn þrátt fyrir rólega byrjun Njarðvíkinga
Davíð Smári er bjartsýnn þrátt fyrir rólega byrjun Njarðvíkinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Geir aðstoðarþjálfari fékk rautt spjald í dag
Halldór Geir aðstoðarþjálfari fékk rautt spjald í dag
Mynd: Njarðvík

Davíð Smári, þjálfari Njarðvíkur var gríðarlega ósáttur þegar lið hans tók á móti Ægi í 0-0 jafntefli.

„Já, bara ótrúlega svekkjandi. Annar leikurinn í röð einhvern veginn þar sem frammistaðan finnst mér verðskulda miklu meira heldur en við fáum og það er svekkjandi."


Lestu um leikinn: Njarðvík 0 -  0 Ægir

„En heilt yfir var þetta vel spilaður leikur hjá okkur og bara miklu, miklu betri aðilinn. Hefðum mátt skora úr allavega einu af öllum þessum færum sem við fengum en Ægisliðið er gríðarlega vel skipulagt varnarlið og í dag fengum að finna fyrir því." sagði svekktur þjálfari Njarðvíkinga.

Halldór Geir Heiðarsson, aðstoðarþjálfari Davíðs hjá Njarðvík fékk að líta rauða spjaldið á 85 mínútu. Sennilega fyrir að segja eitthvað við dómara leiksins.

„Ég nenni varla að ræða þessa dómara, ég er búinn að vera að reyna að vera jákvæður í þeirra garð og ég er líka búinn að vera neikvæður. Ég held að það sé best bara að halda kjafti og ég held að rauða spjaldið hafi bara verið algjör óþarfi, til að vera alveg hreinskilinn. Bæði af mínum aðstoðarmanni að sýna þessar tilfinningar, maður má það víst ekki lengur og svo líka bara gefa þetta rauða spjald á 85.mínútu einhvern veginn. Þú veist, mér finnst þetta bara fáránleg ákvörðun."


Njarðvíkingum var spáð góðu gengi á tímabilinu en liðið hefur ekki byrjað þetta tímabil eins vel og þeir hefðu óskað sér og hafa aðeins unnið einn leik.

„Það sem er kannski jákvætt úr þessu er að við erum með gríðarlega sterka karaktera og það er búið að vera, eins og þú veist, mikil áföll í þessu. Alvarleg meiðsli hjá nokkrum lykilmönnum og auðvitað fyrirliði liðsins, slítur krossband fyrir mót.´´

„Þá lendir Omar Diouck lendir í alvarlegum meiðslum og er ekki búinn að æfa með okkur í fjóra-fimm mánuði. Jóhann Ægir slítur auðvitað krossband í síðasta leik og það er bara búið að vera svona hellingur af uppákomum sem maður hefði viljað sleppa við."

Davíð lítur bjartsýnn á framhaldið.

„Þetta er bara partur af fótboltanum og mun bara styrkja okkur sem lið. Það mun sjást þegar liðið byrjar að tikka aftur og þetta ójafnvægi sem er í liðinu formlega séð verður betra. Mér finnst það bara sjást á frammistöðunni hér í dag að við fáum urmul af færum hérna undir lok leiks . Ég held að það sé það jákvæða við þetta hérna í dag."


Slapp
banner
banner