Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 20:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Inter meistari í 21. skipti
Mynd: EPA
Inter tryggði sér ítalska meistaratitilinn eftir sigur á Parma í kvöld. Það var ljóst fyrir leikinn að liðið þurfti aðeins eitt stig að tryggja sér titilinn.

Inter var með öll völd á vellinum frá upphafi til enda. Liðið komst yfir í uppbótatíma fyrri hálfleiks. Piotr Zielinski fann Marcus Thuram galopinn inn á teignum og hann skoraði af öryggi.

Henrikh Mkhitaryan tryggði Inter sigurinn og titilinn þegar hann skoraði af stuttu færi eftir undirbúning Lautaro Martinez.

Þetta er í 21. sinn sem liðið vinnur titilinn í sögunni og í þriðja sinn á síðustu sex árum. Liðið er með 12 stiga forystu á Napoli, sem vann titilinn í fyrra, þegar níu stig eru eftir í pottinum.

Juventus gerði jafntefli gegn föllnu liði Hellas Verona og er aðeins þremur stigum á undan Como í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Inter 2 - 0 Parma
1-0 Marcus Thuram ('45 )
2-0 Henrikh Mkhitaryan ('80 )

Juventus 1 - 1 Verona
0-1 Kieron Bowie ('34 )
1-1 Dusan Vlahovic ('62 )


Scenes from the San Siro after Inter win the title
by
u/Blodgharm in
soccer


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 35 26 4 5 82 31 +51 82
2 Napoli 35 21 7 7 52 33 +19 70
3 Milan 35 19 10 6 48 29 +19 67
4 Juventus 35 18 11 6 58 30 +28 65
5 Como 35 17 11 7 59 28 +31 62
6 Roma 34 19 4 11 48 29 +19 61
7 Atalanta 35 14 13 8 47 32 +15 55
8 Bologna 35 14 7 14 42 41 +1 49
9 Sassuolo 35 14 7 14 43 44 -1 49
10 Lazio 34 12 12 10 37 33 +4 48
11 Udinese 35 13 8 14 43 46 -3 47
12 Parma 35 10 12 13 25 42 -17 42
13 Torino 35 11 8 16 39 58 -19 41
14 Genoa 35 10 10 15 40 48 -8 40
15 Fiorentina 34 8 13 13 38 45 -7 37
16 Cagliari 35 9 10 16 36 49 -13 37
17 Lecce 35 8 8 19 24 47 -23 32
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 35 3 11 21 24 57 -33 20
20 Pisa 35 2 12 21 25 63 -38 18
Slapp
banner
banner