Í kvöld klukkan 18:45 mætast Færeyjar og Ísland í vináttulandsleik í Þórshöfn í Færeyjum, leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Nú er ljóst að leikurinn fer fram án áhorfenda en stefnt hafði verið að því að hleypa fólki í stúkurnar.
Bakslag í baráttu Færeyinga við Covid-19 veiruna gerir það að verkum að áhorfendabann verður á næstu leikjum.

„Fótbóltur uttan áskoðarar komandi dagarnar," segir í fyrirsögn í frétt bolt.fo.
Þar segir að þeir áhorfendur sem höfðu keypt sér miða á leikinn fái endurgreitt.
Ísland og Færeyjar hafa mæst 25 sinnum í A landsliðum karla og hefur íslenska liðið unnið sigur 23 sinnum. Niðurstaðan var markalaust jafntefli í viðureign liðanna árið 1984 og eini sigur Færeyinga hingað til kom í vináttuleik í Kórnum í Kópavogi árið 2009.
Athugasemdir