Það fóru fjórir leikir fram í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag þar sem liðsfélagar Cristiano Ronaldo í Al-Nassr gerðu sigurmark í uppbótartíma. Ronaldo var ekki með vegna meiðsla.
Al-Nassr skapaði góð færi en það vantaði Ronaldo til að klára þau, svo boltinn rataði ekki í netið fyrr en á 95. mínútu þegar varnarmaðurinn Mohamed Simakan tók til sinna ráða og skoraði eftir stoðsendingu frá Joao Félix.
Simakan skoraði eina mark leiksins þrátt fyrir mikla yfirburði Al-Nassr, sem var að vinna sinn þrettánda leik í röð í öllum keppnum. Liðið er með tveggja stiga forystu á toppi arabísku deildarinnar, með 64 stig eftir 25 umferðir.
Kingsley Coman, Sadio Mané, Marcelo Brozovic og Inigo Martínez voru einnig meðal byrjunarliðsmanna Al-Nassr. Fyrrum úrvalsdeildarleikmennirnir Alexandre Lacazette, Abdoulaye Doucouré og Saïd Benrahma voru í sterku byrjunarliði gestaliðs Neom SC.
Yannick Carrasco skoraði þá í jafnteflisleik Al-Shabab gegn Al-Ettifaq, þar sem leikmenn á borð við Josh Brownhill og Yacine Adli spiluðu við Georginio Wijnaldum og félaga. Wijnaldum er fyrirliði Al-Ettifaq og gaf stoðsendingu.
Mateo Retegui og Julian Quinones settu sitthvora tvennuna í þægilegum sigri Al-Qadsiah og er Quinones búinn að jafna Ivan Toney á toppi markalista deildarinnar, með 24 mörk í 22 leikjum.
Al-Qadsiah er aðeins fjórum stigum frá sæti í Meistaradeild Asíu, með 57 stig eftir 25 umferðir. Julian Weigl, Otávio og Nahitan Nández voru einnig meðal byrjunarliðsmanna Al-Qadsiah í dag.
Að lokum átti Fashion Sakala mark og stoðsendingu í stórsigri Al-Fayha á útivelli. Chris Smalling var á sínum stað í hjarta varnarinnar og urðu lokatölur 0-5.
Al-Nassr 1 - 0 Neom SC
1-0 Mohamed Simakan ('95)
Al-Ettifaq 1 - 1 Al-Shabab
1-0 Khalid Al-Ghannam ('51)
1-1 Yannick Carrasco ('57, víti)
Al-Kholood 1 - 4 Al-Qadsiah
0-1 Julian Quinones ('2)
1-1 Ramiro Enrique ('4)
1-2 Mateo Retegui ('21)
1-3 Julian Quinones ('27)
1-4 Mateo Retegui ('74)
Al-Okhdood 0 - 5 Al-Fayha
0-1 Sabri Dahal ('11)
0-2 Alfa Semedo ('55)
0-3 Fashion Sakala ('61)
0-4 Jason Remeseiro ('67)
0-5 Silvere Ganvoula ('91)
Athugasemdir


