Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í spænska boltanum þar sem helst er að frétta að Orri Steinn Óskarsson lék fyrstu 56 mínúturnar er Real Sociedad heimsótti stórveldi Atlético Madrid.
Alexander Sörloth kom heimamönnum yfir eftir langt innkast snemma leiks en Carlos Soler var fljótur að jafna metin með laglegu marki eftir góða sókn. Atlético var talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en tókst ekki að bæta marki við, svo staðan var 1-1 í leikhlé.
Atlético var áfram sterkari aðilinn í síðari hálfleik. Orri Steinn fékk gult spjald og var svo skipt af velli fyrir Mikel Oyarzabal, fyrirliða Sociedad og leikmann spænska landsliðsins.
Argentínski kantmaðurinn Nicolás González kom inn af bekknum í liði Atlético og átti eftir að skipta sköpum. Hann kom Atlético yfir á nýjan leik með góðu marki eftir stórkostlega hælsendingu frá Antoine Griezmann, en Oyarzabal jafnaði metin fyrir Sociedad með mögnuðu skoti stuttu eftir að Sociedad tók miðju.
Atlético þjarmaði að Sociedad á lokakaflanum og skoraði González sitt annað mark á 81. mínútu, með skalla eftir fyrirgjöf frá Matteo Ruggeri. Þetta reyndist sigurmark leiksins, svo lokatölur urðu 3-2.
Atlético er svo gott sem öruggt með sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð, en liðið er tíu stigum á eftir toppliði Barcelona sem á leik til góða. Sociedad er fimm stigum frá evrópusæti.
Í fyrri leikjum dagsins gerðu Osasuna og Levante jafntefli á heimavelli. Osasuna lenti tveimur mörkum undir gegn Mallorca en tókst að jafna leikinn á lokamínútunum eftir að leikmaður úr sitthvoru liði hafði verið rekinn af velli. Vedat Muriqi skoraði bæði mörk Mallorca en það dugði ekki til.
Levante náði þá forystunni gegn Girona en missti svo mann af velli með rautt spjald. Girona tókst að jafna í uppbótartíma og urðu lokatölur 1-1 þrátt fyrir tilraunir Levante til að gera sigurmark á lokamínútunum.
Atletico Madrid 3 - 2 Real Sociedad
1-0 Alexander Sorloth ('5 )
1-1 Carlos Soler ('9 )
2-1 Nico Gonzalez ('67 )
2-2 Mikel Oyarzabal ('68 )
3-2 Nico Gonzalez ('81 )
Osasuna 2 - 2 Mallorca
0-1 Vedat Muriqi ('35 )
0-2 Vedat Muriqi ('61 )
1-2 Enrique Barja ('89 )
2-2 Ante Budimir ('94 )
Rautt spjald: Jan Virgili, Mallorca ('73)
Rautt spjald: Raul Garcia, Osasuna ('82)
Levante 1 - 1 Girona
1-0 Carlos Espi ('50 )
1-1 Joel Roca ('94 )
Rautt spjald: Jon Ander Olasagasti, Levante ('59)
Athugasemdir


