„Já þetta er mjög sárt, virkilega sárt. Við ætluðum okkur meira," sagði Júlíus Ármann Júlíusson þjálfari Aftureldingar eftir leik þeirra við Fylki í Pepsi deild kvenna sem fram fór á Varmárvelli nú í kvöld. Leikurinn endaði 0-1 Fylki í vil og við það féllu Afturelding endanlega niður um deild og fara þær niður ásamt Þrótti.
„Við vorum bara nokkuð góðar í þessum leik, óheppnar að fá þetta mark á okkur, klaufalegt en við áttum fínan leik að mínu mati."
Aðspurður út í framhaldið hafði Júlíus eftirfarandi að segja;
„Útlendingarnir fara heim til sín, en ég vonast eftir því að ef leikmennirnir verða áfram þá ætla ég að hugsa minn gang og athuga hvort ég verði áfram líka."























