Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   lau 28. mars 2026 21:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fótbolti.net ræddi við Mikael Egil Ellertsson eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Kanada í æfingaleik í dag.

Lestu um leikinn: Kanada 2 -  2 Ísland

„Það var nóg að gerast í þessum leik. Það var kalt og erfiðar aðstæður að spila í. Við reyndum að spila okkar leik en þetta var erfiður leikur og erfiðar aðstæður," sagði Mikael.

Orri Steinn Óskarsson skoraði bæði mörk liðsins en hann skoraði seinna markið með góðu skoti eftir laglegan undirbúning Mikaels.

„Þegar fyrirliðinn kemur til baka, hann er með helvítis löpp, getur klárað færin, það er helvíti gott. Við viljum alltaf að framherjinn klári færin sín," sagði Mikael.

Mikael fékk á sig vítaspyrnu eftir rúmlega klukkutíma leik fyrir litlar sakir og Jonathan David skoraði fyrra mark Kanada í kjölfarið. Leikmaður Kanada fékk síðan rauða spjaldið undir lok leiksins fyrir að gefa Mikael olnbogaskot.

„Þetta er fyndið, þetta er ekki víti sko. Ég spyr líka gæjann sem datt. Hann sagði bara 'ekki séns' og fór að hlæja undir treyjunni. Alltaf svekkjandi að missa forystu. Kannski ef það hefði verið VAR þá veit maður aldrei. Þetta rauða spjald er líka soft. Hann kemur með olnbogann í smettið á mér en þetta er ekki rautt," sagði Mikael

„Ég heyrði línumanninn segja 'rautt, rautt'. Ég tek því en þetta var ekki rautt."
Slapp
banner
banner