Port Vale 1 - 0 Sunderland
1-0 Ben Waine ('28 )
1-0 Ben Waine ('28 )
Port Vale, botnlið C-deildarinnar, fékk Sunderland í heimsókn í enska bikarnum í dag.
Sunderland réði ferðinni en Port Vale náði óvænt forystunni eftir hálftíma leik þegar Ben Waine kom boltanum í netið af miklu harðfylgi.
Sunderland menn reyndu hvað þeir gátu að jafna metin og voru með öll völd á vellinum í seinni hálfleik en allt kom fyrir ekki og mark Waine skildi liðin að.
Magnaður árangur hjá Port Vale sem vann Championship liðið Bristol City í síðustu umferð.
Athugasemdir


