Birna Kristín Björnsdóttir og FH hafa komist að samkomulagi um nýjan samning en hún verður áfram hjá félaginu út árið 2028.
Birna Kristín er algjör lykilmaður í liðinu en hún hefur spilað alla leiki liðsins frá því í lok árs 2024.
Birna er uppalin í Breiðabliki en hún gekk til liðs við FH frá Aftureldingu árið 2023.
Hún skoraði 2 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni síðasta sumar þegar FH hafnaði í 2. sæti deildarinnar. Hún á að baki 31 landsleik fyrir hönd yngri landsliða Íslands.
Athugasemdir


