Hermann Hreiðarsson tók við sem nýr þjálfari Vals í vetur eftir að félagið ákvað að láta Srdjan Tufegdzic, Túfa, fara eftir síðasta tímabil.
Túfa stýrði liðinu í tvö ár og hafnaði liðið í öðru sæti á síðasta tímabili í bæði deild og bikar. Í spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil er Valsmönnum spáð í 6. sæti.
Valsararnir tveir, Jóhann Skúli Jónsson og Jóhann Már Helgason, mættu í Niðurtalninguna hér á Fótbolta.net á föstudaginn var og ræddu þjálfaraskiptin.

„Ég syrgi ekkert endilega það að hann hafi verið látinn fara. Mér fannst hann kominn á endastöð. Ég veit ekki hvað hann hefur getað gefið liðinu meira. Það var mín túlkun sem stuðningsmaður; Þetta var það besta sem hann gat gert út frá þessari stöðu.
Við förum í bikarúrslitaleikinn og við sjáum hvernig hann spilaðist. Það var pirrandi hvernig sá leikur var settur upp. Það voru fleiri leikir, í úrslitakeppninni t.d. þar sem við bara sóttum ekki,“ sagði Jóhann Skúli og tók nafni hans þá til máls:
Stemningsmaður og allt það
„Síðan var farið í það að breyta hlutunum og einhverjir orðrómar um að það væri ekki nægileg samheldni þarna. Og þar kemur kannski hugsunin á bakvið Hemma. Stemningsmaður og allt það. Hann á að búa til sterka og öfluga liðsheild ásamt því að yngja liðið. Þeir meta það þannig að rétti maðurinn í það verkefni hafi verið Hemmi,“ sagði Jóhann Már.
„Það sem maður heyrir í umræðunni er að það sé allt í bál og brand á Hlíðarenda. Ég fæ ekki þá tilfinningu þegar ég mæti þarna, ég kaupi ekki að það sé súr stemning þarna. Hún kemur kannski í sumar ef að úrslitin detti ekki. En ég held að stemningin í hópnum sé alveg fín,“ sagði Jói Skúli að lokum.
Athugasemdir