Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
banner
   mán 30. mars 2026 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Yrði erfitt að hafna Barcelona"
Mynd: EPA
Marc Cucurella, bakvörður Chelsea, er spenntur fyrir því að snúa aftur í spænsku deildina.

Hann segist hins vegar vera ánægður hjá Chelsea og sér ekki fyrir sér að snúa aftur til Spánar á næstu árum.

Cucurella er 27 ára gamall en hann er uppalinn hjá Barcelona. Jordi Alba var hins vegar á undan honum í goggunarröðinni og hann fór til Eibar og Getafe áður en hann samdi við Brighton í úrvalsdeildinni. Hann var þar í eitt ár áður en hann gekk til liðs við Chelsea.

Hann segir að það yrði erfitt að hafna tilboði frá Barcelona ef það kæmi. Það er hins vegar ólíklegt að Barcelona muni eiga efni á honum í sumar.

„Það yrði erfti að hafna því. Þetta snýst ekki bara um mig. Ég myndi þurfa að hugsa um fjölskylduna, ef þetta gerist þá gerist það. Við sjáum þá til hvaða ákvörðun verður tekin," sagði Cucurella.
Slapp
Athugasemdir
banner