Tottenham er í stjóraleit eftir að Igor Tudor var látinn taka pokann sinn á dögunum eftir aðeins rúman mánuð í starfi.
Mauricio Pochettino, fyrrum stjóri Tottenham og núverandi landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, hefur verið orðaður við starfið. Hann segist hins vegar vera ánægður í Bandaríkjunum og hefur ekki rætt við Tottenham.

Roberto De Zerbi, fyrrum stjóri Brighton, er talinn líklegastur til að taka við liðinu. Pochettino hefur engar áhyggjur af Tottenham sem er aðeins einu stigi frá fallsæti.
„Ég er viss um að þeir munu bjarga sér frá falli, með eða án þjálfara. Út af því að ég tel að Tottenham sé með ótrúlega leikmenn og stuðningsmennirnir munu búa til orku til að vinna. Það verður auðvitað erfitt," sagði Pochettino.
Athugasemdir