Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
banner
   mán 30. mars 2026 18:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
U21: Ísland grátlega nálægt því að næla í stig gegn Frökkum
Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði mark Íslands
Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði mark Íslands
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Frakkland U21 2 - 1 Ísland U21
1-0 Noe Lebreton ('10 )
1-1 Daníel Tristan Guðjohnsen ('24 , víti)
2-1 Nathan Zeze ('29 )
Lestu um leikinn

U21 landslið Íslands heimsótti Frakkland í undankeppni HM í kvöld. Ísland var tveimur stigum á eftir Frökkum fyrir leikinn en liðin voru í 1. og 2. sæti riðilsins.

Noe Lebreton kom Frökkum yfir snemma leiks þegar hann tók mjög vel á móti fyrirgjöf og fékk aðeins of mikinn tíma til að ná skoti á markið.

Frakkar voru ákafir í kjölfarið en Ísland jafnaði metin eftir rúmlega 20 mínútna leik. Daníel Freyr Kristjánsson féll í teignum eftir að Leny Yoro, fyrirliði Frakka og leikmaður Man Utd, braut á honum og vítaspyrna dæmd.

Daníel Tristan Guðjohnsen fór á punktinn og skoraði og jafnaði metin.

Stuttu síðar kom sending inn á teig Íslands eftir aukaspyrnu. Lesley Ugochukwu skallaði boltann í stöngina og boltinn var laus inn á teignum. Íslendingarnir frusu en Nathan Zeze var ákveðinn og skoraði af öryggi.

Ísland fékk góða möguleika í seinni hálfleik. Liðið pressaði mikið á Frakkana í lokin og Logi Hrafn Róbertsson var grátlega nálægt því að bjarga stigi fyrir liðið þegar hann átti skot í slá í blálokin. Nær komust Íslendingar ekki og svekkjandi tap gegn sterku liði Frakka staðreynd.

Frakkar eru á toppnum í riðlinum með 16 stig en Ísland er í 2. sæti með 11 stig, Frakkar eiga leik tíl góða. Liðin mætast aftur hér heima þann 25. september.


Slapp
Athugasemdir
banner
banner