Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   mán 30. mars 2026 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Freysi að fá velskan landsliðsmann frá skosku stórliði
Matondo og Ryan Giggs þáverandi landsliðsþjálfari Wales
Matondo og Ryan Giggs þáverandi landsliðsþjálfari Wales
Mynd: EPA
Freyr Alexandersson er að ná í áhugaverðan leikmann en Rabbi Matondo er að ganga til liðs við félagið frá Rangers. Sky Sports greinir frá þessu.

Matondo er fæddur í Liverpool og lék með U15 landsliði Englands áður en hann skipti og fór að spila fyrir Wales.

Hann er þessa stundina í landsliðsverkefni með A-landsliði Wales en hann mun ganga til liðs við Brann að því loknu. Hann fer á frjálsri sölu en hann yfirgefur Rangers þremur mánuðum áður en samningurinn hans rennur út.

Hann gekk til liðs við Rangers frá Schalke árið 2022. Hann spilaði 44 fyrir liðið en hann hefur ekki verið inn í myndinni hjá Danny Rohl sem tók við liðinu í október.

Tveimur umferðum er lokið í norsku deildinni en Brann er án stiga.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner