Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
banner
   mán 30. mars 2026 11:55
Kári Snorrason
„Þegar ég kem þá fer ég í Þór“
Í leik með Þór sumarið 2024.
Í leik með Þór sumarið 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er í góðu sambandi við Sigga og hef verið að ræða við hann um stöðuna.“
„Ég er í góðu sambandi við Sigga og hef verið að ræða við hann um stöðuna.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson býst ekki við að snúa heim í Þór í sumar, en samningur hans við katarska félagið Al Gharafa rennur út þann 30. júní.

Hann býst við að fá áframhaldandi samning í Katar, hvort sem það verði hjá Al Gharafa eða öðru katörsku félagi. Aron segir þó uppeldisfélagið vita að þegar hann snýr aftur til Íslands mun hann spila með Þór.

Fótbolti.net ræddi við Aron á dögunum sem er staddur í Kanada með landsliðinu og mætir liðið Haítí í vináttuleik á morgun.

„Þeir vita alveg mína stöðu Þórsararnir. Við erum alveg í góðum díalóg með það. Þeir vita það alveg að þegar ég kem heim þá kem ég í Þór. En mér finnst eins og að það sé ekki alveg komið að því. Ég er að spila vel og líður vel úti.

Svo veit maður aldrei, maður veit ekkert hvort að þeim í Katar snúist hugur. En mér líður eins og ég eigi eftir að fá áframhaldandi samning, hvort sem það verði hjá Al Gharafa eða hjá einhverju öðru liði þar úti. Þetta verður bara að koma í ljós eins og þeir vita í Þór, þeir vita líka að þegar ég kem heim þá kem ég þangað.“


Hvernig líst þér á komandi tímabil hjá Þórsurum?
„Mjög vel. Ég er í góðu sambandi við Sigga þjálfara og hef verið að ræða við hann um stöðuna. Hann er mjög ánægður með hvernig liðið hefur komið undan undirbúningstímabili. Það er auðvitað mikil spenna og tilhlökkun.

Það er langt síðan að við höfum verið í efstu deild. Ég er mjög bjartsýnn á tímabilið, þetta verður erfitt, flókið, bras, vinna og álag. En ég held að hópurinn sé orðinn nokkuð góður, fyrir kannski utan það að missa Balde. En ég veit að þeir séu að vinna í hörðum höndum að ná í framherja sem á að skora mörkin.“

Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Slapp
Athugasemdir
banner
banner