Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   mán 30. mars 2026 19:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid vill frekar fá Fernandez heldur en Rodri
Mynd: EPA
Real Madrid vill frekar fá Enzo Fernandes, leikmann Chelsea, til liðs við sig frekar en Rodri, miðjumann Man City, samkvæmt heimildum spænska miðilsins Marca.

Samningur Fernandez hjá Chelsea rennur út árið 2032. Hann ýtti undir vangaveltur um framtíð sína í gær þegar hann sagðis vilja búa í Madrid.

Þessi 25 ára gamli miðjumaður sagði eftir að Chelsea féll úr leik i Meistaradeildinni eftir tap gegn PSG að hann væri ekki viss um framtíð sína og hann myndi ákveða hana eftir HM í sumar.

Rodri sagði í spænskum fjölmiðlum að hann gæti ekki hafnað einu besta liði heims þegar hann var spurður út í Real Madrid.

Samkvæmt heimildum Sky Sports ætlar Chelsea að fá miðjumann í sumar og er tilbúið að hlusta á tilboð í Fernandez. Félagið vill hins vegar fá rúmlega 100 milljónir punda fyrir hann.
Slapp
Athugasemdir
banner