Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   þri 31. mars 2026 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM umspilið í dag - Fjögur lið tryggja sér sæti á lokamótinu
Mynd: EPA
Það er komið að fjórum úrslitaleikjum en fjögur lönd geta tryggt sér sæti á HM í kvöld.

Tékkar unnu lærisveina Heimis Hallgrímsson frá Írlandi en liðið mætir Danmörku í kvöld sem vann Norður Makedóníu í undanúrslitunum. Sigurvegarinn í kvöld verður í D-riðli á HM með Mexíkó, Suður Kóreu og Suður Afríku.

Bosnía og Ítalía mætast. Ítalía vann Norður-Írland og Bosnía vann Wales í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum. Sigurvegari kvöldsins verður í B-riðli með Kanada, Katar og Sviss.

Kósóvó vann Slóvakíu í hörku leik í undanúrslitunum en liðið mætir Tyrklandi sem vann Rúmeníu. Sigurvegari kvöldsins verður í D-riðli með Bandaríkjunum, Paragvæ og Ástralíu. Þá mætast Svíþjóð og Pólland. Svíþjóð vann Úkraínu í undanúrslitum og Pólland lagði Albaníu. Sigurvegari kvöldsins verður í F-riðli með Hollandi, Japan og Túnis.

þriðjudagur 31. mars

HM umspil
18:45 Bosnía - Ítalía
18:45 Tékkland - Danmörk
18:45 Kósóvó - Tyrkland
18:45 Svíþjóð - Pólland
Slapp
Athugasemdir
banner
banner