Síðasti leikur 16-liða úrslita enska bikarsins fer fram í kvöld þegar West Ham United og Brentford eigast við í Lundúnaslag.
Mikil eftirvænting er fyrir þennan úrvalsdeildarslag þar sem liðin freista þess að tryggja sér þátttökurétt meðal 8 síðustu keppenda mótsins.
Brentford vann báðar innbyrðisviðureignir liðanna á síðasta dagatalsári á London Stadium, en þetta er í þriðja sinn í röð sem liðin mætast í innbyrðisviðureign á heimavelli Hamranna.
Til gamans má geta að bæði lið eiga tvo sigra, tvö jafntefli og eitt tap í síðustu fimm leikjum í öllum keppnum.
Leikur kvöldsins
19:30 West Ham - Brentford
Athugasemdir


