Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
banner
   sun 29. mars 2026 11:08
Brynjar Ingi Erluson
Man City tilbúið að bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali
Powerade
James Trafford til Newcastle?
James Trafford til Newcastle?
Mynd: EPA
Man City vill Tonali
Man City vill Tonali
Mynd: EPA
Þá er komið að Powerade-slúðurpakkanum á þessum ágæta sunnudegi en Adam Wharton, James Trafford og Sandro Tonali koma allir við sögu.

Newcastle United hefur enn mikinn áhuga á að fá James Trafford (23), markvörð Manchester City, ef hann ákveður að fara í leit að meiri spiltíma. (Football Insider)

Á meðan undirbýr Man City tilbúið að bjóða Newcastle nokkra leikmenn í skiptum fyrir ítalska miðjumanninn Sandro Tonali (25). (Teamtalk)

Sean Dyche hefur blásið á þær sögusagnir um að hann sé í viðræðum um að taka við af Igor Tudor hjá Tottenham. (Talksport)

Barcelona, Tottenham, Liverpool og Manchester United eru meðal þeirra félaga sem eru að fylgjast með Evan Ndicka (26), varnarmanni Roma á Ítalíu. Talið er að Roma sé reiðubúið að samþykkja tilboð sem nemur 39 milljónum punda. (Caught Offside)

Liverpool og Chelsea hafa áhuga á því að fá Roggerio Nyakossi (22), varnarmann Leuven í Belgíu. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Leuven. (Sun)

Hinn fjölhæfi Marcos Llorente (31) vill vera áfram hjá Atlético Madríd og hefur þegar hafið viðræður um framlengingu á samningi sínum, þrátt fyrir áhuga úr ensku úrvalsdeildinni. (Fichajes)

Real Madrid ætlar að blanda sér í baráttuna um Adam Wharton (22), miðjumann Crystal Palace á Englandi. (AS)

Nico Schlotterbeck (26), miðvörður Borussia Dortmund, er nálægt því að ganga frá nýjum samningi við Dortmund sem mun gilda til 2031. Hann er á óskalista bæði Liverpool og Real Madrid. (Florian Plettenberg)
Slapp
Athugasemdir
banner