Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   mán 30. mars 2026 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Víkingur getur kallað Svein Margeir til baka í glugganum
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Það vakti athygli að Sveinn Margeir Hauksson var með Víkingum þegar liðið varð meistari meistaranna eftir sigur á Vestra í gær.

Það hefur nefninlega verið staðfest að hann muni spila á láni hjá KA í sumar. Sveinn Margeir byrjaði á bekknum í gær en kom inn á sem varamaður undir lokin.

„Hann þarf mínútur, það er ástæðan fyrir því að hann sé að fara á lán og hann þarf bara að fá fleiri mínútur. Það var bara svona pælingin á bakvið það."

„Hann er búin að vinna virkilega hart að því að koma til baka í gegnum mjög erfið meiðsli sem hafa tekið mikið á og mér fannst bara fínt tækifæri að gefa honum mínútur hérna í dag bara upp á framtíðina hjá honum. Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá," sagði Sölvi Geir Ottesen eftir leikinn.

Hann sagði frá því að Víkingur hefur tök á því að kalla hann til baka úr láni frá KA.

„Já, það er bara um mitt sumar ef við teljum okkur þurfa á hans kröftum í sumar þá getum við kallað hann til baka," sagði Sölvi Geir.
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
Slapp
Athugasemdir