Scott McTominay hefur verið frábær síðan hann gekk til liðs við Napoli frá Man Utd árið 2024. Hann var m.a. tilnefndur til Ballon d'Or verðlaunana eftir frábært fyrsta tímabil með ítalska liðinu.
Sean Dyche, þáverandi stjóri Everton, sagði TalkSPORT frá því að hann hafi verið nálægt því að fá skoska miðjumanninn til sín áður en hann fór til Napoli.
„Það var mjög nálægt því að gerast, ég trúði því ekki að ég hafi misst af honum. Ég held að umboðsmaðurinn hans hafi sagt að hann hafi verið klár í slaginn og allt," sagði Dyche.
Dyche var rekinn frá Everton nokkrum mánuðum síðar.
„Ég nefni engan á nafn en það var leikmaður sem átti að fara í hina áttina en við náðum þessu ekki yfir línuna. Ég held að það hefði breytt öllu fyrir mig."
Athugasemdir



