Ibrahima Balde gekk óvænt til liðs við bikarmeistara Vestra á dögunum frá Þór. Hann lék allan leikinn þegar Vestri mætti Víkingi í Meistarar meistaranna í gær.
Sparkspekingurinn Albert Brynjar Ingason var ekki parsáttur við líkamlegt atgervi Balde í leiknum og ræddi það í Dr. Football.
„Það var átakanlegt að sjá standið á honum, þetta var eins og að horfa á goðsagna-góðgerðaleik. Þetta er lengsta undirbúningstímabil í heimi, það eru fjórar vikur í mót og hann er svona,“ sagði Albert.

Daniel Badu, þjálfari Vestra, sagði í viðtali við Fótbolta.net í gær að liðið væri eftir á í undirbúningi fyrir mót og að hópurinn ætti eitthvað í land.
Balde gekk til liðs við Vestra fyrir rúmum tveimur vikum og sagði Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, í samtali við Vísi ástæðuna vera að hann vildi ekki spila sem fremsti maður hjá Þórsurum.
Og þar með er fótboltavertíðin formlega hafin???? Víkingur er meistari meistaranna 2026???? eftir 4-0 sigur á Vestra í árlegum meistaraleik Íslands- og bikarmeistara.
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) March 29, 2026
2-0 ????Nikolaj Hansen '18 / '44 3-0 ??Valdimar Þór Ingimundarson '87
4-0 ??Óskar Borgþórsson '92
????Sjáðu mörkin???? pic.twitter.com/iANjj38KT3
Athugasemdir