Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   sun 29. mars 2026 12:30
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid að ganga frá fyrstu kaupum sumargluggans
Nico Paz
Nico Paz
Mynd: EPA
Spænska félagið Real Madrid er að ganga frá fyrstu kaupum sumargluggans en það lítur allt út fyrir að argentínski sóknartengiliðurinn Nico Paz sé á leið til félagsins frá Como.

Þetta er líklega eitt versta geymda leyndarmál félagaskiptagluggans til þessa.

Paz kom til Como frá Real Madrid árið 2024 og blómstrað í hlutverki sínu undir stjórn Cesc Fabregas.

Madrídingar settu 9 milljóna evra endurkaupsákvæði og eru stærstu spænsku miðlarnir sammála um að það verði nýtt í sumar. Fabrizio Romano segir Paz mikilvægan hluta af framtíð Madrídinga.

Ef Real Madrid hættir við mun það eiga möguleika á að fá Paz á næsta ári fyrir 10 milljónir evra.

Paz, sem er 21 árs gamall, hefur komið að sautján mörkum í 33 leikjum með Como á tímabilinu og skoraði þá á dögunum fyrsta A-landsliðsmark sitt með Argentínu í 2-1 sigri á Máritaníu.
Slapp
banner
banner