Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 21:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikur: Skoraði sín fyrstu mörk fyrir Frakka
Mynd: EPA
Colombia 1 - 4 France
0-1 Desire Doue ('29 )
0-2 Marcus Thuram ('41 )
0-3 Desire Doue ('56 )
1-3 Jaminton Campaz ('77 )

Desire Doue, tvítugur leikmaður PSG, skoraði sín fyrstu landsliðsmörk fyrir Frakka í æfingaleik gegn Kólumbíu í dag. Hann hefur spilað sex landsleiki.

Hann skoraði fyrsta mark leiksins eftir hálftíma leik og Marcus Thuram bætti öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks.

Doue bætti þriðja markinu við snemma í seinni hálfleik eftir sendingu frá Thuram út í teiginn.

Jaminton Campaz klóraði í bakkann fyrir Kólumbíu eftir sendingu frá Jefferson Lerma, leikmanni Crystal Palace.
Slapp
Athugasemdir
banner