Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   mán 30. mars 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Vængir Júpíters skoruðu átta
Arnar Ragnars
Arnar Ragnars
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vængir Júpíters unnu stórsigur á KM í næst síðasta leik liðanna í riðli þrjú í C-deild Lengjubikarsins.

Arnar Ragnars Guðjohnsen var atkvæðamestur hjá Vængjunum en hann skoraði fernu. Þá skoraði Aron Páll Símonarson tvennu.

Vængir Júpíters eru í 3. sæti með 6 stig, þremur stigum á eftir BF 108 sem er í 2. sæti en liðin mætast í lokaumferðinni. KM er á botninum án stiga.

Kría og Árborg skildu jöfn í riðli eitt en Árborg er í 3. sæti með sjö stig og Kría í 4. sæti með fjögur stig.

KM 1 - 8 Vængir Júpiters
0-1 Máni Sævarsson ('3 )
0-2 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('15 )
1-2 Stefán Sævar Weywadt Gíslason ('18 )
1-3 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('25 )
1-4 Eyþór Daði Hauksson ('28 )
1-5 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('45 )
1-6 Aron Páll Símonarson ('68 )
1-7 Aron Páll Símonarson ('73 )
1-8 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('89 )

Kría 1 - 1 Árborg
1-0 Aðalsteinn Örn Ragnarsson ('60 )
1-1 Adam Örn Sveinbjörnsson ('64 )
Slapp
Athugasemdir
banner