Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 14:33
Brynjar Ingi Erluson
Zubimendi fann fyrir eymslum í hné - Farinn aftur til Lundúna
Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Martin Zubimendi hefur yfirgefið æfingabúðir spænska landsliðsins og er farinn aftur til Arsenal í meðhöndlun en þetta kemur fram í tilkynningu spænska fótboltasambandsins.

Zubimendi verður því tíundi Arsenal-maðurinn sem dregur sig úr landsliðinu.

Samkvæmt spænska fótboltasambandinu fann Zubimendi fyrir verk í hné og fékk leyfi til að yfirgefa hópinn.

Hann mun síðan fara í meðhöndlun hjá Arsenal við komuna til Lundúna.

Mjög sérstök staða sem er komin upp að tíu Arsenal-menn hafi þurft að draga sig úr landsliðshópnum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Mikel Arteta, stjóri Arsenal, mun stilla upp liði sínu um helgina, en það munu einhverjar spurningar vakna upp ef meirihlutinn af þessum leikmönnum verða í hópnum gegn Southampton í 8-liða úrslitum enska bikarsins næstu helgi.

Zubimendi spilaði í 3-0 sigri Spánverja á Serbum á dögunum en mun þá missa af leiknum gegn Egyptum á þriðjudag.
Slapp
Athugasemdir
banner