Miðvörðurinn Ronald Araujo segist ekki hafa ætlað að meiða Phil Foden er hann fór í hressilega tæklingu á enska landsliðsmanninum í 1-1 jafntefli Englands og Úrúgvæ um helgina.
Araujo fór í groddalega tæklingu á Foden. Hann vann vissulega boltann en fylgdi tæklingunni á eftir og var heppinn að fá ekki reisupassann.
Thomas Tuchel, þjálfari Englendinga, var allt annað en sáttur með dómgæsluna í leiknum og fannst halla verulega á enska liðið.
Araujo sem er nú alveg þekktur fyrir að vera heldur mikill fantur á velli segist ekki hafa ætlað sér að meiða Foden og er ánægður að Englendingurinn hafi ekki meiðst alvarlega.
„Ég talaði við Phil Foden eftir leikinn og hann sagði mér að allt væri í góðu. Þetta er bara eitthvað sem gerist á vellinum,“ sagði Araujo.
„Það var enginn ásetningur hjá mér að gera eitthvað slæmt. Ég reyndi við boltann og hann veit það, þannig það er allt í góðu. Ég er ánægður með að hann hafi ekki meiðst,“ sagði varnarmaðurinn.
Athugasemdir


