Mun Albert Guðmundsson yfirgefa Fiorentina í sumar? Þetta eru vangaveltur sem miðillinn Goal hendir fram.
Albert hefur verið að kljást við meiðsli og er ekki í landsliðshópnum þessa stundina til að geta fengið frí til að ná sér.
Albert hefur verið að kljást við meiðsli og er ekki í landsliðshópnum þessa stundina til að geta fengið frí til að ná sér.
Hann hefur ekki verið upp á sitt besta og Goal veltir því fyrir sér hvort endurkoma Manor Solomon af meiðslalistanum gæti haft slæm áhrif á hann.
Í umfjöllun Goal segir að það sé vissulega ekki hægt að kvarta undan því að hann hafi skorað níu mörk og lagt upp sex en stuðningsmenn liðsins virðast ekki vera alveg á hans bandi.
Tímabilið hjá liðinu hefur verið algjör vonbrigði en liðið hefur verið í fallbaráttu í deildinni en er þó komið í 8-liða úrslit Sambandsdeildarinnar þar sem liðið mætir Crystal Palace. Það mun koma í ljós hvernig tímabilinu lýkur og hvort Albert muni vera upp á sitt besta á lokasprettinum.
Athugasemdir



