Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 12:36
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Sturluð staðreynd um þjálfara mótherja Íslands
Eimskip
Haítí er að búa sig undir þátttöku á HM í sumar.
Haítí er að búa sig undir þátttöku á HM í sumar.
Mynd: EPA
Sebastien Migne er fyrrum landsliðsþjálfari Kenýa.
Sebastien Migne er fyrrum landsliðsþjálfari Kenýa.
Mynd: EPA
Það var mikil gleði á Haítí þegar HM sætið var tryggt.
Það var mikil gleði á Haítí þegar HM sætið var tryggt.
Mynd: EPA
Á þriðjudag leikur íslenska landsliðið aftur gegn þjóð sem er að búa sig undir þátttöku á HM í sumar; það er Haíti, eyríkið í Karíbahafi. Þetta er í annað sinn sem þjóðin kemst á HM, hitt skiptið var 1974.

Þjálfari Haítí er franskur og heitir Sebastien Migne. Hann náði því afreki að stýra Haítí á HM án þess að hafa nokkurn tíma komið til landsins. Sturluð staðreynd sem margir lesendur vissu af enda fjölluðum við um þetta í nóvember.

Ferðamenn eru varaðir við því að ferðast til Haítí vegna ástandsins í landinu þar sem glæpatíðni er há og mikil fátækt ríkir; varað er við mannránum, hryðjuverkastarfsemi og borgaralegum óeirðum. Vopnuð glæpagengi hafa tekið nánast öll völd í höfuðborginni.

Haítí hefur spilað heimaleiki sína mörghundruðum kílómetrum frá landinu, á eyríkinu Curacao. Enginn landsliðsmaður Haítí býr á Haítí.

„Venjulega bý ég í löndunum þar sem ég starfa en nú er það ómögulegt vegna hættunnar. Það eru ekki lengur alþjóðleg flug þangað," sagði hinn 53 ára gamli Migne sem var aðstoðarlandsliðsþjálfari Kamerún á síðasta HM.

Í mjög erfiðum riðli á HM
Haítí lék vináttulandsleik hér í Toronto í gær. Liðið tapaði 1-0 gegn Túnis en Sebastian Tounekti, leikmaður Celtic, skoraði sigurmark Túnisa.

Haítí verður í mjög erfiðum riðli á HM; með Brasilíu, Marokkó og Skotlandi. Migne gerir sér grein fyrir því að verkefnið er ærið.

„Brasilía er goðsagnakenndasta þjóð HM sögunnar og Marokkó fór alla leið í undanúrslit í síðustu keppni. Ef við horfum á jákvæðu hliðarnar verðum við klárlega í sviðsljósinu sem eru stór verðlaun fyrir mitt lið. Nú þurfum við að mæta þangað og sýna að við séum tilbúnir í þessa áskorun," segir Migne.

Leikur Íslands og Haítí á þriðjudag (16:30 að íslenskum tíma) verður sögulegur fyrir þær sakir að þjóðirnar hafa aldrei áður og raunar hefur ekkert íslenskt fótboltalandslið áður mætt Haítí. Haítí er í 82. sæti heimslista FIFA, átta sætum neðar en Ísland.

Slapp
Athugasemdir