Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
banner
   mán 30. mars 2026 11:40
Kári Snorrason
Væri algjörlega galið að láta Tryggva fara - „Tólf milljónir gera ekki neitt fyrir klúbbinn“
Tryggvi Hrafn Haraldsson.
Tryggvi Hrafn Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Már Helgason og Jóhann Skúli Jónsson.
Jóhann Már Helgason og Jóhann Skúli Jónsson.
Mynd: Kári Snorrason
Tryggvi Hrafn Haraldsson, leikmaður Vals, verður samningslaus eftir tímabil. Það hefur ekki verið launungamál að Skagamenn hafa haft mikinn áhuga á Tryggva.

ÍA hefur lagt fram þó nokkur tilboð í uppaldna Skagamanninn og hefur verið slúðrað um að besta tilboð félagsins hljóði upp á tólf milljónir króna en öllum tilboðunum hefur verið neitað.

Rætt var um framtíð Tryggva Hrafns í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net þar sem Valsararnir tveir, Jóhann Skúli Jónsson og Jóhann Már Helgason, tjáðu sínar skoðanir.

„Það væri algjörlega galið að láta hann fara. Tólf milljónir gera ekki neitt fyrir klúbbinn. Hann er líka að spila fyrir næsta samning. Ef hann skorar tíu mörk og á tíu stoðsendingar, eins og hann gerir yfirleitt, þá fær hann ennþá betra tilboð frá Skaganum. Hans hagur er að spila vel fyrir Val á þessu tímabili.

Myndi ég vilja halda Tryggva? Alveg klárlega. En hann er þrítugur á árinu, mér finnst það ekki passa inn í það sem Valur er að gera ef þeir ætla að bjóða honum þriggja, fjögurra ára samning. En við getum ekki misst hann, ekki nema að það sé annar leikmaður af sama gæðaflokki klár. Það er eini möguleikinn og sá möguleiki er ekki til,“
sagði Jóhann Skúli.

Þó að við myndum fá fimmtán milljónir fyrir hann þá er stuðningsmönnum alveg sama,“ sagði Jóhann Már og Jói Skúli tekur til máls: „Ég er ekkert að hreykja mig af bankabókinni hjá Val. Þá ertu fyrir mér kominn með fimmtán milljóna króna gat á völlinn.“

„Þess vegna eru menn eiginlega ekki að pæla í þessu. Menn horfa á hann sem algjöran lykilmann og hann verður í Val. Hann er ekki að ýta á eftir þessu, hann mun hafa valmöguleika eftir tímabil. Hvort sem að hann verður áfram í Val, fari á Skagann eða eitthvert annað,“
sagði Jóhann Már að lokum.
Niðurtalningin - Hemmi hefur allt að sanna
Slapp
Athugasemdir
banner